Bílaviðgerðir nágrannans
Bílaviðgerðir nágrannans. 07.07.2006
Amiliueyju, Florida.
Kristján er núna úti að gera einhverja karlmannlega hluti. Bíll nágrannans fór ekki í gang í morgun og það var til þess á kóróna ferðalagið hans því hann flaut út úr tjaldinu sínu í gærkveldi eftir skýfallið og varð að sofa í bílnum í nótt. Hann var að hugsa um að skilja eftir helvítis tjaldið því hann nennti ekki að taka það saman svona rennandi.
Þeir eru þarna saman komnir sex karlmenn og horfa ofan í vélarhúddið ábúðarfullir á svip.
Í upphafi var sjúkdómsgreiningin rafmagnslaus geymir, síðan ónýtur startari og svo geymirinn aftur.
Ég held að þessi menn tali ensku en er ekki alveg viss því mállýskan er svo sérstök að við skiljum varla baun en kinkum samt kolli reglubundið og hlæjum þegar aðrir hlæja. Það er eins og þeir beri bara fram hálft orð í einu.
Það er þegar komin foringi í þennan hóp sem er búin að skella sér undir bílinn nokkrum sinnum og "hamra” þetta duglega en enn gengur ekkert. Kristjáni hefur strax tekist að óhreinka stuttbuxurnar sínar sem hann keypti sér í gær.
Í fyrstu pásu þá gáfu þeir sér tíma til þess að ganga hringinn í kring um bílinn okkar og dáðst að honum. Í leiðinni uppgötvaðist að lokið á dísel tanknum var horfið, er sjálfsagt ofan á síðustu dísel dælu sem við stoppuðum við um 100 mílur í burtu. Nú er tanknum lokað með zipplock plastpoka og iðnaðarteipi og guð má vita hvort, og hvar, við fáum svona lok.
Kristján heldur því reyndar fram að lokinu hafi verið stolið því það er það eina sem auðvelt er að stela af þessum bíl en ég er ekki eins sannfærð.
En það er svo sem möguleiki að einhver hafi verið að stela sér bensíni og er núna einhvers staðar strandaglópur með handónýta vél (ha, ha).
Viti menn, bílinn var að fara í gang. Plúss tengingin á geyminum var bara dálítið laus, það þurfti aðeins að skrúfa. Nú geta allir farið í kaffi til kvennanna nokkuð drjúgir með sjálfan sig eftir að:
hafa farið með startarann á verkstæði í næsta bæjarfélagi og komist að því að hún var í góðu lagi
Skriðið fimm sinnum undir bílinn og jafnoft undan honum aftur.
Tjakkað bílinn a.m.k. tvisvar upp
Fengið start fjórum sinnum
Hrist og skakað allar snúrur og leiðslur sem voru sjáanlegar ofan í vélarhúddinu
og að lokum tekið fram alla verkfærakassa í nágrenninu.
Þegar maður er húsbíla eigandi þá er eins gott að geta reddað sér. Kristján lærði heilmikið á meðan ég geispaði.
