Rómantísk stund
Rómantísk stund. 2006-07-06
Núna rétt í þessu verslaði ég hálfa matvöruverslun í svengdarkasti og á nú, á matvöru lagernum, hluti til þess að búa til franska, ítalska, arabíska, indverska, tælenska, mexíkóska, íslenska og bandaríska gourmet rétti. Ég veit bara ekki alveg hvar ég á að koma þessu öllu fyrir í einum húsbíl með takmörkuðu skápa skápa plássi.
Kristján heimtaði hamborgara á grillið og það var ekki nema sjálfsagt mál. Það er sama sagan með hamborgarana og beikonið. Þetta er ekki framleitt í nema XL stærðum. Lágmarks þykktin var 2 cm (ég veit ekki alveg hvað það er í fetum).
Við brunuðum með fullan bíl af mat á tjaldstæðið til þess að grilla. Kristján dreif sig út að kveikja í kolunum (hans verk, ekkert kvenfrelsi þar). Skyndilega heyrðum við einhver læti í fjarska og við nánari hlustun reyndust það vera þrumur og eldingar. Það var eins og við manninn mælt, um leið og kolin voru tilbúin skall á helli demba. Kristján getur nú verið þrjóskari en andskotinn og hann ætlaði að fá grillaðan hamborgara. Það var því brugðið á það ráð að reyna að vernda kolin með álpappír og vona að þrumuveðrið gengi hratt yfir eins og oftast áður.
Ef eitthvað var, þá jók í veðrið og himininn lýstist af eldingum. Kristján klæddi sig í regn stakkinn og bjó til einhverskonar ofn úr ofnskúffunum og álpappír og þar grillaði hann hamborgara og kornstangir. Við sátum svo úti undir skyggninu á bílnum, borðuðum hamborgara, horfðum á rigninguna og hlustuðum á þrumurnar sem virtust vera rétt fyrir ofan hausinn á okkur. Smán saman myndaðist heil á sem rann undir borðið og við sátum í ökla djúpu vatni. Í fyrsta skipti á þessu ferðalagi var okkur mátulega heitt úti við og ekki rennandi blaut af svita.
Á meðan við borðuðum þrumuborgarann og sulluðum í ánni var nágranninn við það að drukkna í tjaldinu sínu og það endaði með að hann brunaði út í bíl með allt sitt hafurtask og ég er viss um að hann hafi talið okkur kolrugluð.
Þetta er ekki hægt á Íslandi því þar fellur rigningin aldrei lóðrétt niður heldur dembist á mann úr öllum áttum. Við gátum meira að segja verið með kerti á borðinu.
