Það á ekki af hundkvikindinu okkar að ganga. Í desember varð hún illilega veik, nánast við dauðans dyr og sú svæsna sýking sem hún fékk þá, og gekk sjálfsagt með í langan tíma, eyddi rauðu blóðkornunum þannig að hún varð verulega blóðlaus og slöpp. Hún fékk meðferð við þessu öllu, jafnaði sig vel, var orðin glöð og kát og skokkaði á eftir okkur eins og unglingur. ......Read more »