Benzi
prinsessufréttir
Posted by kristjan
prinsess diaries
Jesús hvað ég sakna klósettsins heima hjá mér. Þegar ég kem heim þá ætla ég að setjast á það í klukkutíma hvort sem eg þurfi að pissa eður ei!! Þið getið kallað mig pjattaða og allt sem þið viljið en þið hafið ekki séð þennann horbjóð. Ég var nú búin að halda mikið í mér til að finna einhvað klósett til að verja einhverjum tima á ef þið vitið hvað ég meina þá komum við á þetta líka fína tjaldstæði með fínum sturtum og klósettum þannig ég rölti mjög svo varnfærnislega á klóið og byrjaði á því að sturta tvisvar niður til að fullvissa mig um það að þar væru engin skorkvikindi og virtist allt vera öruggt þannig ég sótthreinsaði það og pakkaði því öllu inn í nærri heila klósettpappírsrúllu og settist niður. Eftir örskamma stund heyri ég eitthvað furðulegt hljóð og spratt á lappir og sturtaði niður og hvað haldiði að hafi sturtast niður úr brúninni sem vatnið kemur út úr? ha? hvað haldiði? helvítis horbjóða kakkalakki!!!!!! KAKKALAKKI!!! í klóinu!!! ohhhh ugh oh ugh ég hjóp út í von um pínu samúð frá útigangsfólkinu mínu en fékk varla klapp á öxlina!! þannig ég er búin að ákveða það að annaðhvort borða ég ekkert það sem eftir er eða æli því bara því ekki ætla ég að lenda í þessu aftur!! Mér var líka farið að langa dáldið í góða og langa sturtu þannig ég tek mitt hafurtask og fer í sturtuna en þá var ekkert heitt vatn þannig þetta var dáldið skrautlegt en náði þó að þvo mér i bak og fyrir með nokkrum kuldahrollahljóðum og kem svo út með gæsahúð en hrein og sæl. Svo fer mamma stuttu seinna og fær auðvitað þessa fínu sjóðandi heita sturtu sem er bara ósanngjarnt. Svo röltum við mamma og Tara upp í þorpið á grænmetismarkaðinn og keyptum sitt lítið af hverju en þurfum að skola allt grænmeti í 20 min. í þar til gerðu grænmetisklóri til að eyða öllu eitri sem er í jarðveginum hérna. Þegar það var búið bjó ég til guakemole og salsa sem var bara snilld og miklu betri en mexikanarnir elda. Maður allavega logaði ekki í kjaftinum hehehe, það var eitthvað vesen með kolinn í grillinu þannig hetjan hann Kristjan fór á stúfanna með eitthvað íkveikjugel svo heyrum við mamma bara ÞAÐ ER KVIKNAÐ Í MÉR og er mér var litið út, þá var löppin á honum alelda og var hann eitthvað að reyna að drepa í skónum sínum en hann er nú svo mikið hörkutól að ekki varð mikill skaði sem betur fer. Þá var bara kúrað upp í rúmi að horfa á 24 og drukkið margaritur a la mamma (mmmmmm). Ég er búin að uppgötva að það bragðast allt betur með mexikanskri límónu og salti og þá sérstaklega bjórglas með salti á brúninni og dágott botnfylli af límónu og svo bjór og kallast það michelada og ætla ég að gera svoleiðis handa ykkur öllum þegar ég kem heim nammi namm
Princess diaries
Posted by kristjan
Jæja gott fólk þá fáið þið smá fréttir af skvísunni. Við erum búin að vera undanfarna daga í Mexico City og er eiginlega ekki hægt að lýsa henni án þess að segja vóvóvívóvóvó er eiginlega bara hálf fegin að komast þaðan. Óskráður íbúafjöldi borgarinnar er 30 milljónir eða örfáum núlllum meira en allt landið okkar. Strætóarnir eru gömul Volkswagen rúgbrauð og stendur fólkið hálfpartinn út úr þeim. Bílstjórarnir hérna fá bókstaflega skirteinið sitt upp úr cheerios pökkum því það eru engin bílpróf tekin hérna, maður fer bara á skrifstofuna og borgar 500 pesos (3000 isk) og þá er prentað út skirteinið. Það eru heldur engar reglur hérna og umferðarljós ógild eftir miðnætti og auðvitað þurftu ástkæru foreldrar minir að villast inn í borgina sem var alls ekki planið og við keyrandi á nærri 8 tonna bíl í allri þessarri geðveiki!! og bílhræðslan mín ekki í góðu standi enda lagðist ég bara upp í rúm með ipodinn í hæðsta og lokuð augun. Löggurnar eru alltaf með blikkandi ljós en ef þeir ætla að stoppa þig nota þeir gallhornið til þess og ef þeim finnst að maður keyra fullhægt þá hljómar úr kallkerfinu andele andele. Öll ´´góðu´´ hverfin eru læst með hliðum og eru verðir að gæta þeirra og vorum við einmitt með bílinn á svoleiðis svæði. Það er ekkert velferðakerfi hérna þannig gamlir eða blindir og fatlaðir reyna að framfleyta sér með götusölu eða betli og fékk ég alltof oft alveg íllt í hjartað. Það eru markaðir hér á hverju strái og oftar en ekki getur maður ekki þverfótað fyrir fólki en Mexicoborg er líka ofboðslega falleg og menningarrík borg og er saga og menning gömlu indíanana alveg ótrúleg.
Prinsess diaries (New feature)
Posted by kristjan
Petra blogs about here visit to Mexico.
Unfortunatly only in Icelandic. This youth language is to hard to translate
Workflow lV
Posted by kristjan
IPTC
As the IPTC code is for more than just images I will not describe it in detail, except for the part that is needed for Photographers and others that like good metadata in their images..



