Skip to main content

Benzi

Oaxaca

Our camping nights in the region of Oaxaca

Night: Night 72
Date: July 6 2007
Name:
Town:
Type of camping: Boondocking

Other World Travellers

Links to World travelers.

Those sites that I list here are all hand chosen and I feel that they give some informations regarding traveling in South and Central America by a expedition vehicle, a Motorhome, RV, camper van or what you want to call it. Some of them give good information on traveling elsewhere in the world.I will put USA links elswhere as there are so many of them fultimers with lot of informations on boondocking, free camping and more

You feel that you or any one else should be on this list then send us a line to: benzitravel att gmail.com

31.08.07 aftur til Mexíkó

Ef einhver er að velta því fyrir sér hvers vegna í ósköpunum við erum komin aftur til Mexícó þá er á því fullkomlega eðlileg skýring. Við erum einfaldlega orðin of hægir ferðalangar fyrir túrhestavísun landa. Við fengum 6 mán vísun fyrir Mexícó og vorum rétt búin að skoða Oaxaca þegar hún var búin og við urðum að bruna yfir landamærin til Gvatemala.

meiri Prinsessufréttir

Æjæjæjæj hvað maður getur verið með pínkulítið hjarta, það sést vel á þessum hluta heimskringlunar. Ég fæ alveg sting þegar ég sé gamalt, krumpað, skitugt og veikt fólk á táslunum vera að betla af manni, Ég læt mömmu sjá um peninga gjafirnar þar sem ég myndi bara tæma vasana með tárin í augunum. Mamma er mun hófstiltari í þessum líknarmálum. Ég held líka að þau þefi veikleika minn uppi þar sem mamma má ekki fara á klósettið og skilja mig eftir eina þá koma þau hlaupandi. Það sem mér finnst líka hræðilegt er að sjá eldgamla menn vera að skrölta um bæinn með þungan söluvarning sem þeir eru að reyna að selja til að framfleyta sér, Ég sem hélt að kjör eldri borgara á íslandi væru slæm en hér er ekkert sem heitir ellilifeyri og þarf fólkið að stóla á börnin sín í ellinni. Ef þú hefur misst börnin þín eða aldrei átt nein þá verður þú bara að betla eða skröltast um allt með söluvagninn og vonast til að selja eitthvað. Það er annað sem fer líka alveg með mig og það eru flækingshundarnir, er að spá í að flytja hingað bara og verða flækingshundakonan! Þetta eru ótrúlega ljúf litil grey og ekki til vont í þeim. Þeir eru skíthræddir við manneskjur þar sem þeir eru vanir að vera grýttir og guð má vita hvað annað, ef maður nálgast þá þá fer skottið a milli lappanna og þeir læðast í burtu fárveikir, með engan til að hlynna að sér. Í gær sá ég einn skokka, voða happy eitthvað, að leita að æti á 2 löppum þar sem ein löppin var svoleiðis mölbrotin og sneri einhvern vegin á hvolf og hin eitthvað sýkt. Mexikanar vilja bara hunda og henda þar af leiðandi tikunum út á götu sem þýðir að það eru fullt af litlum flækingshvolpum sem svo stunda það að fara til ferðamanna og dilla skottinu og vera rosasætir í von um að þeir ættleiði sig, enda margir bandaríkjamenn sem taka með sér eitt litið kríli heim. Ef ég væri bandaríkjamaður væri ég sko búin að senda þá nokkra til læknis í sprautur og beint með þá heim.