Skip to main content

Aumingja ég (og svolítið Kristján)

Flugurnar náðu fullkominni hefnd að lokum, kannski ekki fullkominni, við erum enn þá á lífi og það er jafnvel útlit fyrir að við verðum það eitthvað áfram, en ljóst er að þær reyndu sitt allra besta. Ef ekki hefði verið fyrir hvítlaukstöflur, Íslenskar lýsispillur og almennt stresslaust ástand okkar og fallegt umhverfi veikinda þá hefði getað farið verr.

Flugnastríðið hefur staðið í langan tíma. Vopnuð flugnaspöðum og "Off" brúsum höfum við lagt til atlögu á hverjum degi. Barist hetjulegri baráttu og kostnaðarsamri því "Off" brúsar eru ekki ódýrir miðað vð endingu og klárast fljótara en kaffipakkarnir okkar sem þó rjúka út eins og heitar lummur. Aðrir eiturefnabrúsr hafa verið tilkallaðir i þetta stríð til þess að spreyja bílinn að innan, hátt og lágt, í þeim tilgangi að drepa allt kvikkt sem þar gæti verið að finna fyrir utan okkur og hundinn.
Við höfum keypt "Off" brúsa sem eru ætlaðir þeim sem eru á leiðinni "in the deep wood" og reynt að fylgjast vel með tímanum til þess að bera á okkur á sex tíma fresti samkv. leiðbeiningum sem stendur örsmáu letri aftan á brúsunum.
Ef að Moskító druslurnar eru einhvers staðar í nánd þá er ég meira að segja hætt að sitja úti í ljósaskiptunum þegar þær eru sem pirraðastar og held mig bara inni við.

Þrátt fyrir þessar varnar aðgerðir þá er það alltaf ein og ein fluga sem hefur ekki gert sér grein fyrir því að hún þolir ekki "Off" og nær að bíta okkur.
Bitin eru reyndar nánast hætt að pirra mig. Smá óþægindi og bólga fyrstu 10 mín. síðan virðast þau gufa upp. Kannski er það fiskiolían. Hjónin frá Michican sem við hittum fyrir rúmlega ári síðan héldu því alla veganna fram og okkur fannst það tilvalin ástæða til þess að byrja að taka lýsi.

Mest svekkjandi í þessu ástandi öllu saman er að regntíminn er að verða búinn og það er farið að kólna og þetta hefur því verið síðustu övæntingarfullu tilraunir kvikindanna þetta árið.
Við sluppum við bæði flóð og Dengue faraldur í Tabasco Mexico og áframhaldandi Dengue í Yucatan skaganum einungis til þess að veikjast hér í Guatemala.
Við vorum veik í viku, nánast alein, á mjög fallegu og stóru tjaldstæði við eco hótel Finca Ixobel hér í Guatemalískri náttúru. Allir ferðalangar virðast vita af þessu hóteli og enda hér a.m.k. eina nótt og flest allir koma saman til þess að borða af sérlega ljúfengu hlaðborði og skella sér svo á barinn á eftir við náttúrulegu sundlaugartjörnina.

Daginn eftir að við komum hingað þá fékk ég skyndilega hita og hausverk og síðan einhver óþægindi í magann. Þar næsta dag hafði hitinn ekkert lækkað og samkv. fyrri reynslu þá byrjaði ég að taka sýklalyf sem virkuðu ekki. Kristján veiktist þann sama dag með háan hita og hausverk en engin önnur einkenni. Það var búið að vera grenjandi rigning og allt vaðandi í drullu og bílinn fremur óhrjálegur.
Það er fátt eitt ömurlegra en að vera lasin í útlöndum og sá sem á að hugsa um mann og dekra við mann á allan hugsanlegan máta liggur jafn veikur og maður sjálfur í rúminu við hliðina. Sem betur fer þá höfðum við fundið stórmarkað daginn áður en við komum hingað og fyllt bílinn af mat þótt að við gerðum reyndar ekki mikið meira en að drekka djús þessa daga.

Það var eiginlega ekkert hægt að gera sér til dundurs því hausinn var aumur og augun sár þrátt fyrir verkjalyf, orkan engin og ekki náðist sjónvarpið.
Hitinn varaði í 6 daga og jafnvel þótt að ég hafi ekki fengið háan hita mest 38.5 þá held ég að þetta hafi verið þessi Dengue sjúkdómur af völdum vírus sem moskítóflugur dreifa. Hafi ég rétt fyrir mér þá fengum við milt form af þessum veikindum. Tara sýndi samúðarveikindar einkenni og mátti sig varla hreyfa og borðaði með hangandi haus en hresstist um leið og við hresstumst.

Við ætlum að vera hér í einn til tvo daga í viðbót að jafna okkur því við erum ennþá slöpp og mátt lítil og mér klæjar í húðinni eins og það sér litlar pöddur að skríða á henni (ógeð) og það þarf nauðsynlega að taka til í öllum bílnum og lofta út eftir allan rakan undanfarið og þetta er hinn fullkomni tiltektartsaður.

Comments

wjx

Mbt zapatosshe Distancia en el mundo ¿No es la vida y la muerte Pero cuando me presento ante ustedes, no sabes que Te amo Mbt zapatos she Distancia en el mundo No cuando me presento ante ustedes, no sabes que Te amo Pero es obvio que no pueden estar juntos en el amor Distancia en el mundo ¿No es estar enamorado, pero no pueden estar juntos
Pero, obviamente, Mbt zapatosno puede resistir el anhelo Sin embargo, pretender que nunca han estado en mi corazón Distancia en el mundo Evidentemente no puede resistir el anhelo
Sin embargo, pretender que nunca han estado en mi corazón Pero con su propio corazón frío que te ama Mbt zapatos Para el que te ama

Christian shoes

Christian shoes for gorgeous women''''s is not as general in the States as his Christian Sandals shoes, but also for his distinctively styled handbags. God forgive me, I interviewed Christian Louboutin while wearing a pair of trainers. What remains most identifiably hiphoppish about it is the beat-in-the-body that serves as ground for Classic Christian Louboutin growing-and contradictory-repertoire of lyrical lambaste it leverages.Some of the dressiest elegant Christian Louboutin pumps also feature sparkling rhinestone bands layered along the raised sole and Christian Louboutin heels.